Póstþjónusta

Þriðjudaginn 10. desember 2002, kl. 23:02:40 (2439)

2002-12-10 23:02:40# 128. lþ. 50.21 fundur 257. mál: #A póstþjónusta# (EES-reglur) frv. 136/2002, Frsm. meiri hluta GHall
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 128. lþ.

[23:02]

Frsm. meiri hluta samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hluta samgn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 19/2002, um póstþjónustu.

Með frumvarpinu er m.a. lagt til að þyngdarmörk og verðmörk bréfa sem falla undir einkarétt ríkisins verði lækkuð í tveimur þrepum. Lagt er til að 1. janúar 2003 lækki þyngdarmörkin úr 250 g í 100 g og verðmörkin úr fimm sinnum lægsta burðargjald í þrisvar sinnum lægsta burðargjald. Þann 1. janúar 2006 er síðan lagt til að þyngdarmörkin lækki í 50 g og verðmörkin í 2,5 sinnum lægsta burðargjald. Þessar breytingar eru í samræmi við þá þróun sem nú á sér stað innan Evrópusambandsins og miðar að opnun póstmarkaðarins.

Meiri hlutinn styður framangreindar breytingar sem og aðrar breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu.

Meiri hlutinn leggur til tvær breytingar á frumvarpinu. Þær eru lagatækilegs eðlis og hafa ekki efnislega breytingu í för með sér.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldum breytingum:

1. Við bætist ný grein er verði 6. gr. og orðist svo:

Í stað orðanna ,,46. gr.`` í 1. mgr. 47. gr. laganna, er verður 48. gr., kemur: 47. gr.

2. 2. mgr. 6. gr. orðist svo:

Frá 1. janúar 2006 skulu þyngdarmörk 7. gr. laganna breytast úr 100 g í 50 g og verðmörk úr þrisvar sinnum lægsta burðargjald í 2,5 sinnum lægsta burðargjald.

Magnús Stefánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. rita auk mín hv. þm. Hjálmar Árnason, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir, Kristján L. Möller og Lúðvík Bergvinsson.

Herra forseti. Að lokinni 2. umr. um þetta frv. legg ég til að því verði vísað til 3. umr.