Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Við umræðu í efh.- og viðskn. og einnig hér í þingsal þótti mér ríkja einhugur um hvaða markmiði ætti að ná með breytingu á 59. og 116. gr. gildandi tekjuskattslaga. Menn vildu tryggja að reglur sem ríkisskattstjóraembættið setti um reiknað endurgjald og mat á hlunnindum ætti sér skýra lagastoð og að því marki sem nauðsynlegt var að byggja á reglugerð yrði að tryggja að lýðræðislega kjörinn aðili kæmi að reglusmíðinni. Tillögur stjórnarmeirihlutans gengu út á þetta og hugðist ég samþykkja þessa lagabreytingu en með brtt. sem nú hefur verið dregin til baka kom fram betra og ásættanlegra orðalag og hugsun og í samræmi við þann vilja sem mér fannst koma fram í efh.- og viðskn.
Í þeirri von að málið fái jákvæða endurskoðun fyrir 3. umr. mun ég sitja hjá við atkvæðagreiðsluna um þessa grein.