Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Ég er andvígur hátekjuskattinum og tel að hann íþyngi barnmörgum fjölskyldum og hamli gegn frumkvæði, dugnaði og vinnusemi. En ég styð ríkisstjórnina sem verður að taka tillit til sjónarmiða beggja flokka og fagna því þessu litla skrefi úr 7% í 5%. Ég segi já með semingi.