Fjármálafyrirtæki

Miðvikudaginn 11. desember 2002, kl. 13:53:05 (2463)

2002-12-11 13:53:05# 128. lþ. 51.2 fundur 215. mál: #A fjármálafyrirtæki# (heildarlög) frv. 161/2002, viðskrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 128. lþ.

[13:53]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða sem ég er ánægð með að skuli vera komið til atkvæðagreiðslu eftir 2. umr. Það sem ekki síst er mikilvægt við málið er að með svokölluðum yfirtökuvörnum sem frv. kveður á um er komið í veg fyrir að sparisjóðakerfið í landinu verði eyðilagt á einni nóttu eins og hefði ella getað orðið.