Fjármálafyrirtæki

Miðvikudaginn 11. desember 2002, kl. 14:26:30 (2468)

2002-12-11 14:26:30# 128. lþ. 51.2 fundur 215. mál: #A fjármálafyrirtæki# (heildarlög) frv. 161/2002, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 128. lþ.

[14:26]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Hér er lagt til að gildistaka þessa frv. verði 1. janúar nk., þ.e. eftir 21 dag. Það er ljóst að stofnfjáreigendur og aðrir aðilar sem gert hafa samninga á grundvelli gildandi laga þurfa að hafa hraðar hendur til að bjarga eignum sínum undan þeirri skerðingu á eignarrétti sem þetta frv. hefur í för með sér. Þetta undirstrikar enn frekar þann tilskipunarblæ sem er á þessu frv.

Þar sem ég má ekki fallast á skerðingu eignarréttar sem í frv. felst en styð þó frv. að öðru leyti sit ég hjá.