Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Hv. þm. spyr: ,,Hvað líður undirbúningi þess að sett verði á fót ein stofnun hér á landi sem hafi yfirumsjón með matvælaeftirliti?`` Og í annan stað: ,,Hvaða breytingar gætu orðið á hlutverki sveitarfélaganna við matvælaeftirlit ef slíkri stofnun verður komið á fót?``
Í mars 2001 var kynnt í ríkisstjórn skýrsla ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur um framtíðarskipan matvælaeftirlits. Það var meginniðurstaða nefndarinnar að núverandi fyrirkomulag matvælaeftirlits sé óviðunandi. Það samræmist ekki kröfum sem gera verður um skilvirka og hagkvæma stjórnsýslu til að tryggja mikilvæga hagsmuni þjóðarinnar. Matvælaeftirlit hér á landi tekur ekki að fullu tillit til þeirrar þróunar sem orðið hefur á undanförnum árum í tækniþróun við framleiðslu matvæla, auknar kröfur neytenda um gæði matvæla og stöðu Íslands sem matvælaframleiðslulands á alþjóðamarkaði. Tillaga nefndarinnar var að sameina stjórnsýslueftirlit með matvælum innan eins ráðuneytis og einnar matvælaeftirlitsstofnunar sem undir það ráðuneyti fellur. Með því móti verði brugðist við þeim göllum sem eru á núverandi kerfi. Jafnframt er stjórnsýsla málaflokksins færð á eitt stjórnsýslustig.
Í framhaldinu var unnið í forsrn. að gerð frv. sem byggir á þeim tillögum sem ráðgjafarnefndin lagði til í skýrslu sinni. Markmiðið er að tryggja virkt og heildstætt eftirlit með matvælum og heilbrigði dýra í þágu neytendaverndar, hagkvæmni, bætts starfsumhverfis og útflutningshagsmuna á þessu sviði. Drögin gera ráð fyrir því að landinu verði skipt upp í eftirlitssvæði og að matvælastofnun hafi starfsstöð, svæðisskrifstofu innan hvers svæðis. Gert er ráð fyrir að allir starfsmenn sem nú vinna að þessum verkefnum innan málaflokksins færist til matvælastofnunar og að skipulag á landsbyggðinni verði þannig að fyrst um sinn haldi núverandi starfsmenn sama starfsstað. Reiknað er með að heildarfjöldi starfsmanna matvælastofnunar verði sambærilegur við það sem er í dag hjá þeim stofnunum sem vinna við matvælaeftirlit. Má því ætla að kostnaður verði svipaður því sem hann er nú.
Á ríkisstjórnarfundi í mars 2002 voru kynnt drög að frv. um eftirlit með matvælum og heilbrigði dýra. Frumvarpsdrögin gerðu ráð fyrir breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Sveitarstjórnarlög, nr. 45/1998, kveða á um samráð ríkis og sveitarfélaga áður en kemur til breytinga á verkaskiptingu á fjármálalegum samskiptum. Ríkisstjórnin samþykkti því að fela fulltrúum forsrh., félmrh., fjmrh. og umhvrh. að kynna Sambandi íslenskra sveitarfélaga áformaðar breytingar og hafa um þær lögboðið samráð.
Að samráðinu loknu skiluðu fulltrúar ríkis og sveitarfélaga í nóvember 2002 eða í síðasta mánuði, hvor sínu álitinu. Þar kom fram að samstaða var með þeim um sum atriði en skiptar skoðanir um önnur. Niðurstaða fulltrúa sveitarfélaga var sú að ekki eru gerðar neinar athugasemdir við að ríkisvaldið sameini yfirstjórn matvælaeftirlits undir eina stofnun og eitt ráðuneyti. Hins vegar eru gerðar athugasemdir við það verklag sem ríkisvaldið hefur viðhaft í þessu máli jafnframt því sem lagst er gegn tillögum um að slíta hluta heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum.
Frumvarpsdrögin voru nýlögð fyrir ríkisstjórn um miðjan nóvember ásamt fram komnum álitum, bæði fulltrúa ríkisins og fulltrúa sveitarfélaganna og hafa tvívegis verið rædd í ríkisstjórn síðan án þess að fá lokaafgreiðslu. Ég vænti þess þó að lokaafgreiðsla málsins geti orðið fljótlega en eins og hv. þm. nefndi hef ég svo sem sagt það áður.