Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst hv. ræðumaður taka nokkuð mikið upp í sig um umboð formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í rauninni er ekki mitt að svara fyrir það, hitt finnst mér verra að hér er borið upp á mig að ég fari fram með ósannindi í greinargerð fyrir þessu frv. Það er alveg ljóst að þessi ákvörðun um kostnaðarskiptinguna var rædd á fundum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þetta er tillaga sameiginlegrar nefndar ríkis og sveitarfélaga sem starfaði og skilaði áliti. Ég vil að það komi fram hér og ég kann illa við það að vera vændur um að bera ósannindi fram í frv. eða greinargerð með því.
Það er alveg ljóst að það er verið að mála þann skratta á vegginn, ef svo má að orði komast, að ríkisvaldið hafi einhvern áhuga fyrir því að draga saman heilsugæsluna úti um land. Það hefur ekkert verið dregið saman í henni. Það er stefnan að hafa heilsugæsluna nærþjónustu úti um allt land og það er engin breyting á þeirri stefnu. Þetta frv. hefur ekki í för með sér neina breytingu á því.
Ég get sagt það einnig að það eru sveitarstjórnir á hinum einstöku stöðum sem bera fram málefni heilsugæslunnar og heilbrigðisþjónustunnar á stöðunum. Þær eru óþreytandi við það. Við þekkjum það báðir úr fjárln., ég og hv. þm., hverjir hafa komið til að reka erindi heilbrigðisþjónustunnar hér um land. Það eru sveitarstjórnir sem gera það. Það eru sveitarstjórnir sem töluðu um Skagaströnd og þar er búið að ákveða að setja heilsugæsluna af stað, setja þá byggingu af stað, og það eru sveitarstjórnir sem töluðu um Raufarhöfn og þar er líka búið að ákveða í hvaða farveg það mál á að fara, samkvæmt óskum heimamanna.