Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):
Herra forseti. Það vill þannig til að rekstrarárið er liðið og það tekur nýtt ár við, 2003, þannig að ég er viss um að það verður kappkostað að Byggðastofnun geti staðið við þau fyrirheit okkar um að styrkja og lána til ferðaþjónustu, eins og hún hefur gert fram til þessa.
Það kom fram í máli mínu að ég er sannfærður um að það vantar þolinmótt fjármagn í ferðaþjónustu á Íslandi. Það er gríðarlega mikil uppbygging í henni og menn eiga gjarnan í vandræðum með að standa í skilum hvað þetta varðar. Uppbyggingin hefur verið mjög hröð og, eins og ég sagði í fyrra andsvari mínu, held ég að það sé full ástæða til að fella starfsemi Ferðamálasjóðs inn í Byggðastofnun. Ég er þess fullviss að það verður kappkostað að styrkja þennan þátt í starfsemi Byggðastofnunar.