Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (um fundarstjórn):
Út af þessari athugasemd, hæstv. forseti, sem hér kom fram af þinni hálfu ...
(Forseti (HBl): Það á að segja hæstv. forseti en ekki segja þú við forseta.)
Það sem kom fram í máli hæstv. forseta, þegar hann gerði athugasemd við að ég skyldi hafa kvatt mér hljóðs til að bera af mér sakir, er ekki rétt, þ.e. að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hafi talað um veiðileyfi á vísindamenn í ræðu sinni áðan. Það var fyrst þegar hann kvaddi sér hljóðs til þess að bera af sér sakir.