Lífeyrissjóður sjómanna

Fimmtudaginn 12. desember 2002, kl. 18:46:29 (2635)

2002-12-12 18:46:29# 128. lþ. 54.8 fundur 355. mál: #A Lífeyrissjóður sjómanna# (elli- og makalífeyrir) frv. 151/2002, EKG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 128. lþ.

[18:46]

Einar K. Guðfinnsson:

Virðulegi forseti. Það kom fram í umræðu um þetta mál hérna fyrr í dag að þessi breyting er fyrst og fremst tæknilegs eðlis og er árétting á atriði sem kemur fram í athugasemdunum við frv. þetta og þess vegna er eðlilegt og sjálfsagt að samþykkja hana.