Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að það þjóni litlum tilgangi að þrátta fram á nótt um þessi atriði.
Það er óumdeilt að sveitarfélögin eru í ár búin að fá 3.750 millj. kr. upp í þessar 4.000 millj. kr. sem þau töldu til skuldar. Við það bætist síðan á næsta ári.