Frsm. heilbr.- og trn. (Katrín Fjeldsted) (andsvar):
Herra forseti. Atriðið sem hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir gerði að umtalsefni var rætt nokkuð í nefndinni. Nefndarmenn voru sammála um að þetta væri réttlætismál sem hér er tilgreint, að skerðingarhlutfall vegna annarra tekna yrði samræmt. Það er talið sanngjarnt og eðlilegt að gera það. Í ljósi þess var einmitt sett í nál. að beina því til heilbrrh. að huga sérstaklega að þessu. Við væntum þess að sjálfsögðu að hann taki því vel. Nefndin var einhuga í þessu máli.