Verkefni Umhverfisstofnunar

Föstudaginn 13. desember 2002, kl. 10:47:02 (2732)

2002-12-13 10:47:02# 128. lþ. 57.4 fundur 405. mál: #A verkefni Umhverfisstofnunar# (breyting ýmissa laga) frv. 164/2002, JÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 128. lþ.

[10:47]

Jóhann Ársælsson:

Hæstv. forseti. Þetta mál um verkefni Umhverfisstofnunar er eðlilegt framhald af tilurð þeirrar stofnunar og hefði á síðasta vetri mátt liggja fyrir í þeirri mynd sem það var lagt fyrir þingið í haust. Brtt. við málið eru flestar til bóta og þó að betur hefði mátt gera, bæði í tíma til vinnu við frv. og breytingar sem hefðu mátt koma til viðbótar, teljum við samfylkingarmenn að þetta mál sé gott mál og styðjum það.