Húsaleigubætur

Föstudaginn 13. desember 2002, kl. 11:00:27 (2737)

2002-12-13 11:00:27# 128. lþ. 57.6 fundur 440. mál: #A húsaleigubætur# (greiðsluþátttaka ríkissjóðs o.fl.) frv. 168/2002, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 128. lþ.

[11:00]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Ég hef í mörg ár bent hv. þingmönnum á það hversu félagslega óréttlátar reglur um húsaleigubætur eru en án árangurs. Þó að ég fallist á þessar breytingar þýðir það engan veginn að ég sé orðinn sáttur við reglurnar enda eru þær jafnvitlausar og -óréttlátar sem hingað til. Ég segi já.