Hjálmar Árnason (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Andstaða hv. þingmanna Vinstri grænna kemur í sjálfu sér ekki á óvart í þessu máli. Ég vil hins vegar andmæla því að hér sé um handarbaksvinnu að ræða. Málið hefur verið afskaplega vel undirbúið af hálfu eigendanna, Akureyringa, sem hafa óskað eftir þessu. Hér er Alþingi einfaldlega að bregðast við óskum heimamanna. Þetta er tiltölulega einföld aðgerð, verið er að breyta Norðurorku í hlutafélag og skapa þar með fyrirtækinu aukinn sveigjanleika þannig að það geti sótt fram til enn frekari og betri verka fyrir hönd þeirra sem eiga það, íbúa Akureyrar. Sambærileg reynsla er þegar fengin, m.a. frá Hitaveitu Suðurnesja, og sú reynsla er einstaklega jákvæð.
Þetta eru lýðræðisleg vinnubrögð. Með þessu er verið að bregðast við ósk lýðræðislega kjörinna fulltrúa á Akureyri. Heimamenn óska eftir þessari breytingu og að sjálfsögðu á Alþingi að verða við því. Réttindi starfsmanna eru tryggð með frv. Það verður Akureyringum örugglega til góðs og því er eðlilegt að segja já í þessari atkvæðagreiðslu.