Fundargerð 128. þingi, 0. fundi, boðaður 2002-10-01 14:00, stóð 14:02:10 til 14:27:04 gert 1 16:0
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 1. okt.


Þingsetning.

Árið 2002, þriðjudaginn 1. október, var hundrað tuttugasta og áttunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og fimmta aðalþing í röðinni en hundrað fertugasta og þriðja samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Sigurður Sigurðarson steig í stólinn og lagði út af Matt. 22:35--40.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Arnbjörg Sveinsdóttir, 2. þm. Austurl.
  2. Árni R. Árnason, 11. þm. Reykn.
  3. Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e
  4. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Reykn.
  5. Ásta R. Jóhannesdóttir, 15. þm. Reykv.
  6. Ásta Möller, 19. þm. Reykv.
  7. Björn Bjarnason, 2. þm. Reykv.
  8. Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv.
  9. Davíð Oddsson, 1. þm. Reykv.
  10. Drífa Hjartardóttir, 1. þm. Suðurl.
  11. Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.
  12. Einar Oddur Kristjánsson, 5. þm. Vestf.
  13. Einar Már Sigurðarson, 4. þm. Austurl.
  14. Geir H. Haarde, 3. þm. Reykv.
  15. Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl.
  16. Guðjón Guðmundsson, 4. þm. Vesturl.
  17. Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf.
  18. Guðmundur Hallvarðsson, 8. þm. Reykv.
  19. Guðmundur Árni Stefánsson, 6. þm. Reykn.
  20. Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl.
  21. Guðrún Ögmundsdóttir, 11. þm. Reykv.
  22. Gunnar Birgisson, 2. þm. Reykn.
  23. Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.
  24. Halldór Blöndal, 1. þm. Norðurl. e.
  25. Hjálmar Árnason, 10. þm. Reykn.
  26. Ísólfur Gylfi Pálmason, 5. þm. Suðurl.
  27. Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl.
  28. Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv.
  29. Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v.
  30. Jón Kristjánsson, 3. þm. Austurl.
  31. Jónína Bjartmarz, 16. þm. Reykv.
  32. Karl V. Matthíasson, 2. þm. Vestf.
  33. Katrín Fjeldsted, 14. þm. Reykv.
  34. Kjartan Ólafsson, 4. þm. Suðurl.
  35. Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv.
  36. Kristinn H. Gunnarsson, 3. þm. Vestf.
  37. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðurl. v.
  38. Kristján Pálsson, 8. þm. Reykn.
  39. Lára Margrét Ragnarsdóttir, 6. þm. Reykv.
  40. Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl.
  41. Magnús Stefánsson, 2. þm. Vesturl.
  42. Margrét Frímannsdóttir, 3. þm. Suðurl.
  43. Ólafur Örn Haraldsson, 12. þm. Reykv.
  44. Páll Pétursson, 2. þm. Norðurl. v.
  45. Pétur H. Blöndal, 10. þm. Reykv.
  46. Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Reykn.
  47. Sigríður Ingvarsdóttir, 4. þm. Norðurl. v.
  48. Sigríður Jóhannesdóttir, 9. þm. Reykn.
  49. Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Reykn.
  50. Siv Friðleifsdóttir, 7. þm. Reykn.
  51. Sólveig Pétursdóttir, 4. þm. Reykv.
  52. Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. e.
  53. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Vesturl.
  54. Svanfríður Jónasdóttir, 4. þm. Norðurl. e.
  55. Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv.
  56. Tómas Ingi Olrich, 5. þm. Norðurl. e.
  57. Valgerður Sverrisdóttir, 2. þm. Norðurl. e.
  58. Vilhjálmur Egilsson, 1. þm. Norðurl. v.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Reykn.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 12. þm. Reykn.
  61. Þuríður Backman, 5. þm. Austurl.
  62. Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv.
  63. Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv.


Forseti Íslands setur þingið.

[14:07]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:20]

Aldursforseti, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, bauð alþingismenn velkomna til starfa og lét í ljós þá ósk að störf Alþingis mættu verða alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.


Kosning forseta.

[14:20]

Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Halldór Blöndal, 1. þm. Norðurl. e., hlaut 45 atkvæði, 15 þingmenn greiddu ekki atkvæði.


Ávarp forseta.

[14:22]

Hinn nýkjörni forseti gekk til forsetastóls og ávarpaði þingmenn.

Fundi frestað kl. 14:27.

---------------