Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 400. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 628  —  400. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Singapúr.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Nikulás Hannigan, Önnu Jóhannsdóttur og Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og lýðveldisins Singapúr sem undirritaður var á Egilsstöðum 26. júní 2002.
    Samningur þessi er fyrsti fríverslunarsamningur sem gerður er milli Evrópuríkja og ríkis í Austur-Asíu og er víðtækasti fríverslunarsamningur sem EFTA-ríkin hafa gert til þessa enda nær gildissvið hans auk vöruviðskipta til þjónustuviðskipta, fjárfestinga, opinberra innkaupa, samkeppnismála og hugverkaréttinda.
    Magnús Stefánsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Jónína Bjartmarz voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 4. des. 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Guðmundur Árni Stefánsson.


Lára M. Ragnarsdóttir.



Björn Bjarnason.


Ögmundur Jónasson.


Einar K. Guðfinnsson.