Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 352. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 657  —  352. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um birtingu laga og stjórnvaldaerinda, nr. 64 16. desember 1943.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rögnu Árnadóttur frá dómsmálaráðuneyti. Nefndinni barst umsögn frá Sýslumannafélagi Íslands auk ábendingar frá tollstjóranum í Reykjavík.
    Með frumvarpinu er lögð til sú breyting á lögum um birtingu laga og stjórnvaldaerinda, nr. 64/1943, að heimilt verði að gefa Lögbirtingablaðið út á rafrænan hátt og dreifa því á netinu án þess að það breyti þeim réttaráhrifum sem eru bundin birtingu í blaðinu. Þannig mun birting í blaðinu miðast við tilgreindan útgáfudag þegar blaðinu er dreift á netinu með sama hætti og hún er nú miðuð við tilgreindan dag þegar blaðið fer í dreifingu frá prentsmiðju.
    Frumvarpið er afrakstur vinnu nefndar sem dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði 22. september 2000 til að gera tillögur um framtíðarskipulag á birtingu laga og stjórnvaldsfyrirmæla. Vinna nefndarinnar leiddi til þess að frá 1. febrúar sl. hefur Lögbirtingablaðið verið aðgengilegt á netinu á slóðinni www.lagabirting.is samhliða hinni prentuðu útgáfu. Samkvæmt greinargerð sem fylgir frumvarpinu hefur reynslan af útgáfu Lögbirtingablaðsins á netinu verið góð og með henni hefur aðgangur almennings að settum réttarheimildum á netinu batnað til muna. Þá er talið að endurgjaldslaus birting blaðsins á netinu geri það mun aðgengilegra en verið hefur þar sem tæplega 77% landsmanna hafa aðgang að tölvu með nettengingu, sbr. niðurstöður rannsóknar frá 2001. Með þessu mun jafnframt sparast umtalsvert fé og útgáfan verða einfaldari og skilvirkari.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Þar sem frumvarpið felur í sér ákveðinn kostnaðarauka fyrir þá sem ekki hafa aðgang að upplýsingum í rafrænu formi leggur nefndin áherslu á að hugað verði að aðgangi almennings að Lögbirtingablaðinu, m.a. í rafrænu formi, á bókasöfnum landsins með vísan til 1. gr. laga nr. 36/1997, um almenningsbókasöfn. Í þeim lögum kemur m.a. fram að hlutverk bókasafna sé að veita fólki greiðan aðgang að upplýsingum á tölvutæku formi.
    Katrín Fjeldsted og Lúðvík Bergvinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Ögmundur Jónasson áheyrnarfulltrúi var samþykkur afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. des. 2002.



Þorgerður K. Gunnarsdóttir,


form., frsm.


Guðrún Ögmundsdóttir.


Kjartan Ólafsson.



Sigríður Ingvarsdóttir.


Pétur H. Blöndal.


Hjálmar Árnason.



Guðjón A. Kristjánsson.