Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 357. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 690  —  357. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um opinberan stuðning við vísindarannsóknar.

Frá meiri hluta menntamálanefndar.



    Nefndin fjallaði um málið í samstarfi við allsherjarnefnd og iðnaðarnefnd þingsins. Frumvarpið er samtvinnað 336. máli um Vísinda- og tækniráð sem allsherjarnefnd hefur til umfjöllunar og 345. máli um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins sem iðnaðarnefnd hefur til umfjöllunar.
    Mál þessi voru einnig lögð fram á 127. þingi en urðu ekki útrædd. Þá bárust umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Arkitektafélagi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Bændasamtökum Íslands, dr. Skúla Sigurðssyni, Félagi háskólakennara, Félagi íslenskra landslagsarkitekta, Félagi prófessora við Háskóla Íslands, Fornleifavernd ríkisins, Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík, Hjartavernd, Iðntæknistofnun, Kennaraháskóla Íslands, læknaráði Landspítala – háskólasjúkrahúss, Náttúrufræðistofnun Íslands, Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Orkustofnun, Rannsóknarráði Íslands, Rannsóknastofu Háskóla Íslands í meinafræði, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Seðlabanka Íslands, Skipulagsfræðingafélagi Íslands, Veðurstofu Íslands og Veiðimálastofnun. Frumvörpin eru nú lögð fram á ný að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem fram komu við meðferð þeirra á síðasta þingi.
    Menntamálanefnd fékk á sinn fund Val Árnason og Hellen Gunnarsdóttur frá menntamálaráðuneyti. Á sameiginlegan fund nefndanna þriggja komu Páll Skúlason og Jón Atli Benediktsson frá Háskóla Íslands, Hallgrímur Jónasson frá Iðntæknistofnun, Þorsteinn Tómasson frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Úlfar Steindórsson frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Hafliði P. Gíslason og Kristján Kristjánsson frá Rannsóknarráði Íslands, Davíð Lúðvíksson frá Samtökum iðnaðarins, Hólmar Svansson og Róbert Jónsson fyrir hönd atvinnuþróunarfélaganna á landsbyggðinni. Þá bárust nefndunum á ný umsagnir um frumvörpin frá Bandalagi háskólamanna, Rannsóknarráði Íslands, Orkustofnun, Samtökum atvinnulífsins, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, Bændasamtökum Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Hafrannsóknastofnun, Háskólanum í Reykjavík, læknaráði Landspítala – háskólasjúkrahúss, Seðlabanka Íslands, Félagi háskólakennara, Félagi prófessora við Háskóla Íslands, Rannsóknastofu Háskóla Íslands í meinafræði, Háskóla Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og dr. Skúla Sigurðssyni.
    Lögbundin endurskoðun laga um Rannsóknarráð Íslands, nr. 61/1994, leiddi til þess að lögð hafa verið fram framangreind frumvörp sem taka til vísindarannsókna og tækniþróunar á Íslandi. Með frumvarpi þessu er fjallað um opinberan stuðning við vísindarannsóknir og er það háð því að frumvarp forsætisráðherra um Vísinda- og tækniráð verði að lögum. Helstu nýmæli frumvarpsins eru samkvæmt greinargerð þau að lagt er til að nýr sjóður, Rannsóknasjóður, taki við hlutverki Vísindasjóðs og Tæknisjóðs samkvæmt núgildandi lögum um Rannsóknarráð Íslands. Stjórn Rannsóknasjóðs tekur við hlutverki því sem úthlutunarnefndir höfðu áður. Þá er lagt til að Tækjasjóður taki við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs samkvæmt sömu lögum og fer stjórn Rannsóknasjóðs einnig með stjórn hans. Hins vegar er lagt til að Rannsóknarnámssjóður starfi áfram undir sérstakri stjórn. Þá er gert ráð fyrir að grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir heyri áfram undir menntamálaráðuneytið. Rannsóknasjóður mun gegna lykilhlutverki við styrkveitingu til rannsókna og áhersla verður lögð á að rannsóknir séu styrktar eftir gæðum sem metin verða samkvæmt faglegum kröfum á viðkomandi sviði. Lagt er til að Tækjasjóður taki við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs. Jafnframt er gert ráð fyrir því nýmæli að sömu aðilar sitji í stjórn Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs og úthluti styrkjum svo sem fyrir er mælt.
    Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins og telur að með því hafi tekist að draga skýr mörk á milli stefnumótunar stjórnvalda á sviði vísinda og tækni annars vegar og úthlutunar styrkja og þjónustu við rannsóknaraðila hins vegar auk þess sem náðst hefur fram einföldun á þessu sviði öllu. Þá hefur komið fram nauðsyn þess að breyta 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða og tryggja umboð Rannsóknarráðs til úthlutunar fyrir árið 2003 og undirbúnings úthlutunar fyrir árið 2004 en ekki 2003 sem þegar liggur fyrir.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða orðist svo:
    Rannsóknarráð Íslands samkvæmt lögum nr. 61/1994 skal annast úthlutun styrkja úr sjóðum í vörslu ráðsins á árinu 2003 og jafnframt vinna að undirbúningi tillagna um úthlutunarreglur skv. 8. gr. laga þessara um styrkveitingar á árinu 2004, þó eigi lengur en til 30. mars 2003. Skipað skal í stjórn Rannsóknasjóðs samkvæmt lögum þessum eigi síðar en 1. apríl 2003.

Alþingi, 9. des. 2002.



Gunnar Birgisson,


form., frsm.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.


Kjartan Ólafsson.



Sigríður Ingvarsdóttir.


Hjálmar Árnason.


Pétur H. Blöndal.