Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 439. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 738  —  439. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2002, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Jóhannsdóttur frá utanríkis- ráðuneyti, Jón Ögmund Þormóðsson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og Guðjón Bragason frá félagsmálaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 93/2002 frá 25. júní 2002, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð ráðsins (EB) nr. 2157/2001 frá 8. október 2001, um samþykktir fyrir Evrópufélög (SE).
    Með reglugerðinni verður félögum sem starfa í meira en einu ríki á svæðinu gefinn kostur á að stofna eitt félag samkvæmt ákveðnum reglum þannig að það geti þá starfað á grundvelli einna reglna um stjórn o.fl. í stað þess að þurfa að starfa á grundvelli mismunandi reglna í löndum, þar sem félögin hafa útibú. Evrópufélög verða sett á stofn með samruna félaga, sameiginlegu útibúi, eignarhaldsfélagi eða breytingu á félagi sem stofnað hefur verið á grundvelli landslaga. Tilskipun um aðild starfsmanna, nr. 2001/86, gerir ráð fyrir að við stofnun Evrópufélags þurfi að semja um hvernig atvinnulýðræði verði háttað í nýja félaginu og settar ákveðnar reglur ef samkomulag næst ekki.
    Innleiðing reglugerðarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og er frestur til að gera nauðsynlegar breytingar á lögum til 8. október 2004.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Rannveig Guðmundsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. des. 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Árni R. Árnason.


Magnús Stefánsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Björn Bjarnason.


Steingrímur J. Sigfússon.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.