Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 447. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 762  —  447. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um skipulag ferðamála, nr. 117/1994, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Unni Gunnarsdóttur frá samgönguráðuneyti og Magnús Oddsson frá Ferðamálaráði.
    Með frumvarpinu er lagt til að ferðamálasjóður verði lagður niður. Frumvarpið er í samræmi við niðurstöðu vinnuhóps sem samgönguráðherra skipaði til að fara yfir stöðu sjóðsins þar sem eiginfjárhlutfall hans uppfyllti ekki skilyrði laga.
    Samkomulag hefur náðst í ríkisstjórn um að stuðningur við verkefni á sviði ferðaþjónustu verði áfram veittur í formi samstarfs Ferðamálaráðs og Byggðastofnunar.
    Nefndin telur ekki liggja alveg ljóst fyrir í frumvarpinu hvernig háttað verði frágangi eigna og skulda Ferðamálasjóðs eftir að hann hefur verið lagður niður og leggur áherslu á að unnið verði að því máli í góðu samstarfi milli viðkomandi ráðuneyta.
    Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að heimild til að innheimta gjald fyrir þjónustu á ferðamannastöðum sem eru í umsjá ríkisins verði felld niður. Þessi breyting snertir ekki megintilgang frumvarpsins sem felst í að leggja niður ferðamálasjóð. Það er álit nefndarinnar að ekki saki að hafa slíka heimild í lögum enda kunna aðstæður og viðhorf manna að breytast gagnvart slíkri gjaldtöku. Með þessu tekur nefndin þó enga afstöðu til þess hvort rétt sé leggja slík gjöld á eða ekki.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri

BREYTINGU:


    3. gr. falli brott.

    Lúðvík Bergvinsson, Kristján L. Möller, Jón Bjarnason og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 13. des. 2002.



Guðmundur Hallvarðsson,


form., frsm.


Arnbjörg Sveinsdóttir.


Jónas Hallgrímsson.



Sigríður Ingvarsdóttir.


Magnús Stefánsson.




Prentað upp.