Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 543. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1044  —  543. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingibjörgu Halldórsdóttur og Þórð Ólafsson frá umhverfisráðuneyti. Umsagnir um málið bárust frá Reykjavíkurborg, Endurvinnslunni, tollstjóranum í Reykjavík, Samtökum verslunarinnar, ÁTVR og Verslunarráði.
    Í frumvarpinu er lagt til að umsýsluþóknun Endurvinnslunnar af umbúðum úr stáli, gleri og plastefni verði hækkuð í samræmi við breytingu sem orðið hefur á vísitölu neysluverðs frá árinu 2000. Fjárhæð umsýsluþóknunar var þá lögfest en vísitalan hefur hækkað um 13% frá þeim tíma.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Gunnar Birgisson og Jóhann Ársælsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 25. febr. 2003.



Magnús Stefánsson,


form., frsm.


Kristján Pálsson.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Katrín Fjeldsted.


Kolbrún Halldórsdóttir.


Ásta Möller.



Ísólfur Gylfi Pálmason.