Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 602. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1255  —  602. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um stjórn fiskveiða, nr. 38 15 maí 1990, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneyti, Ólaf S. Ástþórsson frá Hafrannsóknastofnuninni, Sævar Gunnarsson og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Helga Laxdal frá Vélstjórafélagi Íslands, Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Árna Bjarnason og Guðjón Ármann Einarsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda.
    Í frumvarpinu er lagt til að núgildandi heimild skipstjóra fiskiskips til að undanskilja allt að 5% af heildarafla í botnfiski sem reiknast ekki til aflamarks skipsins verði framlengd um tvö fiskveiðiár. Tilgangur ákvæðisins var að koma í veg fyrir brottkast og hefur reynslan af því verið góð.
    Í umfjöllun nefndarinnar kom fram tillaga um breytingu þannig að heimildin gilti um allar tegundir, þ.e. ekki einungis botnfisksafla heldur einnig uppsjávarafla, enda slæðast aðrar tegundir með þar eins og í botnfiskveiðum. Lagt er til að heimilt verði að undanskilja allt að 0,5% af uppsjávarafla fiskiskips.
    Þá var á það bent að stofnanir og sjálfstætt starfandi vísindamenn gætu sótt um styrki í þann sjóð er fæst fyrir umframaflann og rennur til Hafrannsóknastofnunarinnar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri

BREYTINGU:

    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    Í stað 1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXIX í lögunum, sbr. b-lið 7. gr. laga nr. 129 20. desember 2001, um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, kemur: Á fiskveiðiárunum 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005 er skipstjóra fiskiskips heimilt að ákveða að hluti af afla skipsins reiknist ekki til aflamarks þess. Sá hluti sem þannig reiknast ekki til aflamarks skipsins skal þó aldrei nema meiru en sem nemur 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla sem hlutaðeigandi skip veiðir á hverju fiskveiðiári. Heimild þessi er háð því að eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt.

    Árni Steinar Jóhannsson sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu með fyrirvara.
    Jóhann Ársælsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. mars 2003.



Árni R. Árnason,


form., frsm.


Kristinn H. Gunnarsson.


Einar K. Guðfinnsson.



Svanfríður Jónasdóttir.


Guðmundur Hallvarðsson.


Guðjón A. Kristjánsson.



Adolf H. Berndsen.


Hjálmar Árnason.