Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 665. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1287  —  665. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2002, um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Jóhannsdóttur og Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Val Árnason frá menntamálaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 171/2002 frá 6. desember 2002, um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/84/EB frá 27. september 2001, um rétt höfundar til þóknunar við endursölu frumgerðar listaverks (fylgirétt).
    Megintilgangur tilskipunarinnar er að samræma reglur um gjald til höfunda vegna endursölu listaverka í atvinnuskyni. Samkvæmt gildandi lögum miðast gjald til höfunda við 10% af söluverði verkanna. Innleiðing tilskipunarinnar mun hafa þau áhrif að endursölugjald lækkar og mun almennt verða í kringum 5%.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og þurfa nauðsynlegar breytingar að hafa verið gerðar fyrir 1. janúar 2006.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. mars 2003.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Rannveig Guðmundsdóttir.


Magnús Stefánsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Björn Bjarnason.


Steingrímur J. Sigfússon.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.