Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 663. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1289  —  663. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2002, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Jóhannsdóttur og Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 166/2002 frá 6. desember 2002, um breytingu á IX. viðauka (Fjármála-þjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/17/EB frá 19. mars 2001, um endurskipulagningu og slit vátryggingafélaga.
    Megintilgangur tilskipunarinnar er að tryggja gagnkvæma viðurkenningu á aðgerðum ríkja efnahagssvæðisins og samvinnu varðandi endurskipulagningu fjárhags og slit vátryggingafélaga og vissa lágmarkssamræmingu landsreglna sem gilda um þessi atriði.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og er frestur til 20. apríl nk. til að gera nauðsynlegar breytingar á lögum. Viðskiptaráðherra lagði fram lagafrumvarp þess efnis fyrir skömmu (568. mál, þskj. 919) og var málið afgreitt sem lög frá Alþingi 10. mars sl.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. mars 2003.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Rannveig Guðmundsdóttir.


Magnús Stefánsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Björn Bjarnason.


Steingrímur J. Sigfússon.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.