Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 421. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1372  —  421. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um Lýðheilsustöð.

Frá meiri hluta heilbrigðis- og trygginganefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðríði Þorsteinsdóttur og Svein Magnússon frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, Sigurð Guðmundsson frá landlæknisembættinu og slysavarnaráði, Hauk Valdimarsson og Harald Briem frá landlæknisembættinu, Lúðvík Ólafsson og Þórunni Ólafsdóttur frá Heilsugæslunni í Reykjavík, Gunnar Ármannsson og Sigurbjörn Sveinsson frá Læknafélagi Íslands, Geir Gunnlaugsson og Valgerði Gunnarsdóttur frá Félagi um lýðheilsu, Þorgrím Þráinsson frá tóbaksvarnanefnd, Þorgerði Ragnarsdóttur frá áfengis- og vímuvarnaráði, Helgu Ágústsdóttur frá tannverndarráði og Laufeyju Steingrímsdóttur frá manneldisráði
    Umsagnir bárust frá Árvekni, Umhverfisstofnun, manneldisráði, tannverndarráði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, landlækni, Læknafélagi Íslands, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Samtökum sykursjúkra, Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands, áfengis- og vímuvarnaráði, Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Sambandi íslenskra tryggingafélaga, tóbaksvarnanefnd, Félagi um lýðheilsu, slysavarnaráði, Landspítala – háskólasjúkrahúsi og Lyfjastofnun. Einnig var stuðst við umsagnir sem bárust þegar málið var til meðferðar á 127. löggjafarþingi.
    Í frumvarpinu er lagt til að stofnuð verði Lýðheilsustöð og er markmið hennar að efla lýðheilsu með því að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðarinnar eða tilgreindra hópa í þjóðfélaginu með skipulegum og viðurkenndum aðferðum. Lýðheilsustöðinni er m.a. ætlað að efla og samræma lýðheilsustarf, annast fræðslu til almennings um heilbrigði og heilsueflingu í samstarfi og samvinnu við landlækni og aðra eftir því sem við á og styðja starfsemi stofnana og frjálsra félagasamtaka til eflingar lýðheilsu. Lagt er til að áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnanefnd starfi innan Lýðheilsustöðvar og verði sérfræðiráð hennar. Einnig er gert ráð fyrir að ýmis heilsueflingar- og forvarnaverkefni verði flutt til hennar, m.a. tannverndarráð, gigtarráð og Árvekni.
    Við umfjöllun málsins var rætt nokkuð um hvaða áhrif Lýðheilsustöð hefði á þá starfsemi á sviði lýðheilsu sem fyrir er. Var þar einkum komið inn á skörun við verkefni landlæknisembættisins og heilsugæslunnar. Lögbundið hlutverk landlæknis er að vera ráðgjafi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, annast faglegt eftirlit með heilbrigðisstéttum og heilbrigðisstofnunum og lyfjanotkun, sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu, annast skýrslugerð um heilbrigðisþjónustu og bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna. Í þessu samhengi er jafnframt vert að geta um ný og þýðingarmikil verkefni landlæknis, svo sem ábyrgð hans á lyfjagagnagrunni samkvæmt frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og læknalögum sem nefndin hefur nýlega afgreitt. Ekki er gert ráð fyrir að Lýðheilsustöð muni breyta að neinu leyti hlutverki landlæknis. Við umfjöllun málsins kom fram athugasemd um að eitt af hlutverkum Lýðheilsustöðvar um að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu skaraðist við ráðgjafarhlutverk landlæknis. Meiri hlutinn sér hins vegar enga annmarka á því að þessir aðilar sinni ráðgjafarhlutverkum sínum samhliða heldur telur þvert á móti til bóta að tveir aðilar veiti ráðgjöf í stað eins áður. Það er því ítrekað að ekki er gert ráð fyrir breytingu á þessu hlutverki landlæknis. Þá vill meiri hlutinn taka fram að þótt ekki séu í lögum eða reglugerðum ákvæði um verkefni landlæknis á sviði forvarna og lýðheilsu hefur landlæknir einnig sinnt ýmsum verkefnum á þessu sviði og er gert ráð fyrir að svo verði áfram en að það verði gert í samráði og samvinnu við Lýðheilsustöð. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir náinni samvinnu milli Lýðheilsustöðvar og landlæknis enda mun landlæknir sitja í landsnefnd um lýðheilsu skv. 4. gr. og tilefna fulltrúa í sérfræðiráð þau sem starfa hjá Lýðheilsustöð skv. 5. gr.
    Við umfjöllun málsins var rætt um hlutverk fagráða þeirra sem starfa hjá landlæknisembættinu. Fagráðin voru sett á fót í upphafi ársins 2000 í þeim tilgangi að vera landlækni til ráðgjafar um áherslur í forvarnastarfi, heilsuvernd og heilsueflingu á ýmsum sviðum heilsugæslu. Er fagráðunum ætlað að gera tillögur til landlæknis um áherslur í heilsuvernd á hverjum tíma, m.a. við gerð klínískra leiðbeininga, kynningu og fræðslu fyrir fagfólk og gerð fræðsluefnis fyrir almenning. Fagráðin eru því vettvangur nýrra hugmynda og þróunarstarfs landlækni til ráðgjafar varðandi þróun á viðkomandi sérsviðum. Starfandi eru átta fagráð, um geðvernd, heilsueflingu, heilsuvernd aldraðra, heyrnarvernd, mæðravernd, sjónvernd, ung- og smábarnavernd og vinnuvernd, auk stýrihóps um sjálfsvígsforvarnir. Lítur meiri hlutinn svo á að við mótun hlutverks Lýðheilsustöðvar verði skerpt á verkaskiptingu milli þessara aðila, annars vegar á hlutverkum fagráða sem starfa hjá landlækni og hins vegar fagráðum sem starfa hjá Lýðheilsustöð.
    Við umfjöllun málsins var rætt hvernig hlutverk Lýðheilsustöðvar skarast við verkefni heilsugæslunnar en hún á lögum samkvæmt að sinna heilsuvernd og forvörnum. Heilsugæslan í Reykjavík sinnir ráðgjafarþjónustu fyrir heilsugæslustöðvar á landsvísu, t.d. á sviði mæðraverndar og barnaverndar. Meiri hlutinn leggur áherslu á að heilsugæslan muni eftir sem áður starfa að forvörnum á þessum sviðum og öðrum. Meiri hlutinn telur að með tilkomu Lýðheilsustöðvar eigi það starf að geta eflst. Til að mynda má gera ráð fyrir að Lýðheilsustöðin muni sjá um gerð kennslu- og fræðsluefnis sem hægt verður að nýta í heilsugæslunni og á öðrum heilbrigðisstofnunum. Margar heilsugæslustöðvar eru litlar með fáu starfsfólki og því hafa þær ekki forsendur til að búa til eigið fræðsluefni. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að gert er ráð fyrir að Lýðheilsustöðin muni hafa samstarf við allar heilsugæslustöðvar á landinu og m.a. láta þeim í té kennsluefni, fræðslu og þjálfun til að starfa að bættri lýðheilsu á hverjum stað. Að mati meiri hlutans mun Lýðheilsustöðin því ekki taka við hlutverki heilsugæslustöðva heldur sé hún til þess fallin að bæta enn þjónustu þeirra við íbúa á hverjum stað.
    Við umfjöllun um málið komu fram áhyggjur af því að Lýðheilsustöðin yrði til þess að draga úr starfsemi frjálsra félagasamtaka. Þó komu þau sjónarmið einnig fram að hún yrði til að efla og ýta undir starf þeirra en henni er m.a. ætlað að hafa samræmingar- og fræðsluhlutverk og styðja við frjáls félagasamtök og stofnanir. Meiri hlutinn treystir því að Lýðheilsustöðin leiði til þess að starfsemi frjálsra félagasamtaka eflist og áfram verði nýttur sá mikli auður sem felst í starfi þeirra.
    Til umræðu kom hvernig rannsóknir tengjast hlutverki Lýðheilsustöðvar. Eitt af hlutverkum hennar verður að stuðla að eflingu kennslu og rannsókna á sviði lýðheilsu og samstarfi við háskóla og aðrar menntastofnanir. Niðurstöður rannsókna eru jafnan grundvöllur forvarnastarfs og mun Lýðheilsustöðin taka þátt í og stuðla að rannsóknum bæði innan stöðvarinnar og í samstarfi við aðra.
    Meiri hlutinn lítur svo á að með frumvarpinu sé lagður grunnur að eflingu forvarnastarfs á mörgum mikilvægum sviðum lýðheilsumála og að með því að færa forvarnastarf undir eina stofnun geti stefnumótun og forgangsröðun verkefna orðið markvissari og fjárveitingar til forvarnastarfs nýst betur. Jafnframt telur meiri hlutinn að hlutverk og starf Lýðheilsustöðvar muni smám saman mótast frekar. Hlutverk hennar er skilgreint vítt í frumvarpinu enda nær lýðheilsa yfir mjög breitt svið þar sem fátt er undanskilið í umhverfi og gjörðum almennings. Gert er ráð fyrir að fleiri þættir og fleiri fagráð muni koma inn í starfsemina en fyrsta skrefið er að koma stofnuninni á fót. Bendir meiri hlutinn t.d. á að ofeldi og sjúkdómar af þess völdum er vaxandi vandamál hér á landi. Við umfjöllun málsins kom m.a. fram að manneldisráð hefur engan markaðan tekjustofn eins og t.d. áfengis- og vímuvarnaráð og tóbaksvarnanefnd. Kynnt var hugmynd sem nefndinni finnst vert að huga að um gjald á sölu gosdrykkja sem rynni til eflingar starfsemi manneldisráðs.
    Samkvæmt umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að forstjóri stýri Lýðheilsustöðinni og jafnframt að fjármálastjóri starfi við stofnunina. Gert er ráð fyrir að fjárveitingar til framangreindra verkefna verði færðar til stöðvarinnar en þær nema 165 millj. kr. í fjárlögum fyrir árið 2002. Meiri hlutinn minnir á að hafa þurfi í huga við fjárveitingar til Lýðheilsustöðvar að hún fái nauðsynlegt fjármagn til að starfsemin geti vaxið og dafnað og sinnt því mikilvæga hlutverki sem henni er ætlað.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    

Alþingi, 11. mars 2003.



Jónína Bjartmarz,


form., frsm.


Ásta Möller.


Katrín Fjeldsted.



Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Ólafur Örn Haraldsson.