Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tel rétt að lesa örstutt úr því áliti sem minni hlutinn sendi frá sér en þar segir, með leyfi forseta:
,,Þótt ekki sé á þessu stigi gerð krafa um endurtalningu allra atkvæða má vera að slíkt kunni að vera nauðsynlegt við nánari skoðun. Það sem mestu skiptir er að vilji kjósenda nái fram að ganga og öllum vafa um annað sé eytt.``
Skýrara getur það ekki verið. Menn vilja eyða þeim vafa sem um er að ræða varðandi vafaatkvæði og utankjörfundaratkvæði. Það gæti svo leitt af sér endurtalningu. Þessi útúrsnúningur, að við höfum ekkert léð á því máls að endurtelja ef að upp kæmi önnur staða er hálfgerð hundalógík, herra þingmaður.