Frsm. meiri hluta kjörbn. (Einar K. Guðfinnsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er rétt, að tillaga minni hluta kjörbréfanefndar er ákaflega skýr. Hún er ekki um að krefjast endurtalningar. Hún gengur út á beiðni um skýrslur, skýrslur sem ég hef þegar rakið að liggja fyrir frá yfirkjörstjórnum í landinu. Hún er því algerlega tilefnislaus. Síðan reynir hv. þm. að þvo sér einhverjum kattarþvotti með því að kannski og ef til vill muni þetta leiða til endurtalningar ef ástæða þykir til. Þetta er hins vegar algerlega í óvissunni og hefur ekkert með hina endanlegu niðurstöðu eða tillöguna sjálfa að gera.
Tillöguna getur að líta á bls. 2. Menn geta bara lesið hana yfir og þá er þetta alveg skýrt. Það er skýrt hvað hér er verið að leggja til. Það er einfaldlega verið að leggja til að því verði frestað að taka afstöðu til kjörbréfanna, ekki krefjast endurtalningar, og síðan í framhaldinu að óska eftir því að það verði lagðar fram skýrslur frá yfirkjörstjórnum, skýrslur sem yfirkjörstjórnin mun að sjálfsögðu leggja fram sem hluta af vinnu sinni við að gera upp kosningarnar að kosningunum loknum.