Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):
Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Mér hefur borist ein tilnefning um hv. 2. þm. Norðausturkjördæmis, Halldór Blöndal. Eru aðrar tilnefningar?
Aðrar tilnefningar hafa ekki borist og er því hv. 2. þm. Norðausturkjördæmis, Halldór Blöndal, einn í kjöri. Þar sem aðeins er einn í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu eins og venja er á undangengnum þingum. Ef ekki eru gerðar athugasemdir við það að sá háttur sé á kosningunni fer atkvæðagreiðslan fram með þeim hætti. Kerfið er þannig stillt að jafna má við leynilega atkvæðagreiðslu. Töflurnar á veggjunum hérna munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Halldór Blöndal ýti á já-hnappinn en þeir sem skila vilja auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflunni.