Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Þriðjudaginn 27. maí 2003, kl. 19:51:08 (62)

2003-05-27 19:51:08# 129. lþ. 3.1 fundur 64#B stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 129. lþ.

[19:51]

Forseti (Halldór Blöndal):

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mín. til framsögu en aðrir þingflokkar en flokkur forsætisráðherra 12 mín. í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mín. og í hinni þriðju 5 mín. hver þingflokkur.

Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn verða fyrir Sjálfstæðisflokk Davíð Oddsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Drífa Hjartardóttir, 5. þm. Suðurk., í annarri umferð og Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvest., í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n., Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 5. þm. Reykv. n., í annarri umferð, og Katrín Júlíusdóttir, 9. þm. Suðvest., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Árni Magnússon félagsmálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri umferð Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðaust.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk., og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest., í fyrstu umferð, í annarri umferð Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest., og Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest., í þriðju umferð.