Þingfrestun

Þriðjudaginn 27. maí 2003, kl. 21:58:49 (81)

2003-05-27 21:58:49# 129. lþ. 4.95 fundur 69#B þingfrestun#, ÞBack
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 129. lþ.

[21:58]

Þuríður Backman:

Herra forseti. Þó að nú sé að ljúka óvenjustuttu þingi þá vil ég fyrir hönd okkar þingmannanna þakka hæstv. forseta Halldóri Blöndal fyrir samvinnuna á þessu vorþingi. Ég óska honum og fjölskyldu hans, þingmönnum öllum og starfsfólki Alþingis góðs sumars og þess að við hittumst öll heil að loknu sumarhléi. Ég bið hv. þingmenn að taka undir orð mín og óskir með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]