Fundargerð 129. þingi, 0. fundi, boðaður 2003-05-26 14:00, stóð 14:03:12 til 14:30:07 gert 26 14:46
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

mánudaginn 26. maí.


Þingsetning.

Árið 2003, mánudaginn 26. maí, var hundrað tuttugasta og níunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það tuttugasta og fjórða aukaþing í röðinni en hundrað fertugasta og fjórða samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur steig í stólinn.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Anna Kristín Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  2. Ágúst Ólafur Ágústsson, 10. þm. Reykv. s.
  3. Árni R. Árnason, 2. þm. Suðurk.
  4. Árni Magnússon, 11. þm. Reykv. n.
  5. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Suðvest.
  6. Ásta R. Jóhannesdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  7. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  8. Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðaust.
  9. Bjarni Benediktsson, 11. þm. Suðvest.
  10. Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurk.
  11. Björn Bjarnason, 4. þm. Reykv. n.
  12. Bryndís Hlöðversdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  13. Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  14. Davíð Oddsson, 2. þm. Reykv. n.
  15. Drífa Hjartardóttir, 5. þm. Suðurk.
  16. Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvest.
  17. Einar Oddur Kristjánsson, 9. þm. Norðvest.
  18. Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðaust.
  19. Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s.
  20. Guðjón Hjörleifsson, 8. þm. Suðurk.
  21. Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest.
  22. Guðlaugur Þór Þórðarson, 6. þm. Reykv. n.
  23. Guðmundur Hallvarðsson, 8. þm. Reykv. s.
  24. Guðmundur Árni Stefánsson, 2. þm. Suðvest.
  25. Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurk.
  26. Guðrún Ögmundsdóttir, 5. þm. Reykv. n.
  27. Gunnar Birgisson, 3. þm. Suðvest.
  28. Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest.
  29. Halldór Ásgrímsson, 7. þm. Reykv. n.
  30. Halldór Blöndal, 2. þm. Norðaust.
  31. Helgi Hjörvar, 9. þm. Reykv. n.
  32. Hjálmar Árnason, 6. þm. Suðurk.
  33. Jóhann Ársælsson, 2. þm. Norðvest.
  34. Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykv. s.
  35. Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.
  36. Jón Gunnarsson, 10. þm. Suðurk.
  37. Jón Kristjánsson, 4. þm. Norðaust.
  38. Jónína Bjartmarz, 6. þm. Reykv. s.
  39. Katrín Júlíusdóttir, 9. þm. Suðvest.
  40. Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n.
  41. Kristinn H. Gunnarsson, 7. þm. Norðvest.
  42. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  43. Lúðvík Bergvinsson, 4. þm. Suðurk.
  44. Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk.
  45. Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvest.
  46. Margrét Frímannsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  47. Mörður Árnason, 7. þm. Reykv. s.
  48. Pétur H. Blöndal, 3. þm. Reykv. s.
  49. Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Suðvest.
  50. Sigríður A. Þórðardóttir, 6. þm. Suðvest.
  51. Sigurður Kári Kristjánsson, 10. þm. Reykv. n.
  52. Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest.
  53. Siv Friðleifsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  54. Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  55. Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust.
  56. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Norðvest.
  57. Tómas Ingi Olrich, 6. þm. Norðaust.
  58. Valgerður Sverrisdóttir, 1. þm. Norðaust.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 8. þm. Suðvest.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvest.
  61. Þuríður Backman, 10. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykv. s.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:08]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman mánudaginn 26. maí.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:22]

Aldursforseti, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, bauð alþingismenn velkomna til starfa og bauð nýja þingmenn sérstaklega velkomna. Hann lét í ljós þá ósk að störf Alþingis verði alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.


Minning Halldórs E. Sigurðssonar.

[14:22]

Aldursforseti minntist Halldórs E. Sigurðssonar, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, sem lést 25. maí sl.


Varamenn taka þingsæti.

[14:27]

Aldursforseti las bréf þess efnis að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, tæki sæti Guðrúnar Ögmundsdóttur, 5. þm. Reykv. n, og Kjartan Ólafsson tæki sæti Árna R. Árnasonar, 1. þm. Suðurk.


Kosning kjörbréfanefndar.

[14:28]

Fram komu tveir listar sem á voru jafnmörg nöfn og menn skyldi kjósa. Samkvæmt því lýsti forseti yfir að kosin væru án atkvæðagreiðslu:

Einar K. Guðfinnsson (A),

Lúðvík Bergvinsson (B),

Hjálmar Árnason (A),

Jóhann Ársælsson (B),

Sigríður A. Þórðardóttir (A),

Ögmundur Jónasson (B),

Þorgerður K. Gunnarsdóttir (A),

Guðjón A. Kristjánsson (B),

Magnús Stefánsson (A).

Fundi frestað kl. 14:30.

---------------