Framhaldsfundir Alþingis

Miðvikudaginn 28. janúar 2004, kl. 13:30:37 (3510)

2004-01-28 13:30:37# 130. lþ. 52.93 fundur 256#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 130. lþ.

[13:30]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda miðvikudaginn 28. janúar 2004, kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 21. janúar 2004.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna og býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.