Arnbjörg Sveinsdóttir:
Hæstv. forseti. Þetta eru mjög ágætar umræður sem hér fara fram um Vatnajökulsþjóðgarð og eins og hv. þm. Össur Skarphéðinsson nefndi er starfandi nefnd um þjóðgarð norðan Vatnajökuls og afskaplega áhugavert að tengja þessi svæði saman.
Hér hefur komið fram í umræðu og verið ýjað að því að menn séu farnir að togast á um hvernig eigi að stjórna þessum þjóðgarði og hverjir eigi að koma að því. Ég vara sérstaklega við því að menn séu að ýfa upp slíkar umræður vegna þess að við sem höfum farið um svæðið til þess að kynna okkur málefnin og kynna okkur náttúrufar svæðisins höfum ekki orðið vör við það af hendi heimamanna að verið sé að slást um einhverja hluti. Menn eru að ræða þetta. Það er mikið umræðuferli í gangi og samráð sem á auðvitað að vera. En ef menn halda að það sé hægt að ýfa upp einhver sárindi milli heimamanna til þess að hafa afsökun fyrir því að flytja málið allt til Reykjavíkur, er það mikill misskilningur.