Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka þá líflegu umræðu sem var í þingsal um þetta mikilvæga mál okkar landsmanna allra sem snertir þó sérstaklega íbúana í þeim sjö sveitarfélögum sem liggja að jöklinum og eiga land þar að. Ég tek undir með hæstv. umhvrh. um leið og ég þakka fyrir svar hennar og fagna því að það styttist í að nefndin skili af sér og þetta mikla verkefni verði að veruleika. Með tilliti til náttúruverndar, byggðar og mannlífs á svæðunum í kringum jökulinn tek ég eindregið undir það að að sjálfsögðu eiga að vera nokkrar jafnsettar rannsóknar- og þjónustumiðstöðvar í kringum jökulinn, að þeim sé vel dreift, réttlátlega og af sanngirni þannig að þeir sem hagsmuna eiga þar mestra að gæta í atvinnulegu tilliti njóti þess í sem ríkustum mæli og skiptir ekki öllu máli hvaða nafn þær bera.
Ég spurði sérstaklega um Jöklasetrið til að fá það fram hjá hæstv. umhvrh. hvort það væri ekki örugglega tryggt og öruggt að það væri inni í myndinni sem ein af meginrannsóknar- og þjónustumiðstöðvum í kringum fyrirhugaðan Vatnajökulsþjóðgarð. Það er ákaflega mikilvægt því að reynslan af Jöklasetrinu, þær sýningar sem þar hafa verið settar upp hafa tekist ákaflega vel og á fjórða þúsund manns hafa keypt sig inn á sýningarnar, skoðað þær og barið augum og fræðst þar mjög um þá merkilegu sögu sem er að finna í kringum þennan stóra og glæsilega jökul. Í því samhengi er nauðsynlegt að byggja á því góða sem fyrir er og nýta þá vitneskju og þá fjármuni sem heimamenn og hið opinbera hefur þegar lagt í að hlúa að þessari starfsemi á Hornafirði sem Jöklasetrið er og byggja á því líka að því leytinu sem ég nefndi áðan í fyrirspurn minni og stefna að því að þar verði sérstök Jöklamiðstöð Íslands stofnsett til rannsókna og til að nýta þá miklu þekkingu sem á svæðinu er.