Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra sagði að hann væri að einfalda kerfið, það væri ekki verið að tvöfalda það. Hvað er það þegar Siglingastofnun þarf að koma aftur á staðinn og skoða upp á nýtt skipin sem einkavæddu stofurnar hafa skoðað? Er það ekki tvöföldun á eftirlitinu? Síðan sagði hæstv. ráðherra að það væri ekki verið að draga úr kröfunum um menntun og fagþekkingu. En það verður ekki gerð krafa um fagþekkingu á sviði skipasmíða til þeirra eftirlitsmanna sem eiga að hafa eftirlit með skipasmíðunum. Það get ég ekki litið á öðruvísi en sé verið að draga úr kröfunni. Ég er ekkert að draga úr því að menn geti haft ágætisþekkingu til þess að skoða búnað skipa og það sem þeim fylgir að öðru leyti en það er ekki þolandi, finnst mér, að ekki sé borin meiri virðing fyrir hinni faglegu þekkingu á sviði skipasmíða en svo að einhverjir aðrir en þeir sem hafa þá þekkingu eigi að hafa eftirlit með smíðinni og taka hana út. Ég held að menn muni lenda í vandræðum með þetta.
Svo sagði hæstv. ráðherra að hann hefði áhyggjur af því að ég hefði sagt að Siglingastofnun hefði ekki staðið undir nafni. Siglingastofnun hefur ekki staðið undir nafni vegna þess að stjórnvöld í þessu landi hafa aldrei séð til þess að virðing væri borin fyrir faglegri þekkingu í eftirlitshlutverki stofnunarinnar. Engin krafa hefur verið gerð um það að menn hefðu faglega þekkingu sem standa t.d. fyrir smíði skipa.