Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það er örugglega mjög framsækið og mjög nútímalegt að stjórnendurnir taki ofan bindið og haldi blaðamannafundi á skautasvellinu. Það er mjög nútímalegt og framsækið. Og það er auðvitað ekki nútímalegt og ekki framsækið að líta svo á að þetta fyrirtæki með náttúrulega einokun í fjarskiptum í landinu sem ríkið á 97, 98, 99% í eða hvað það nú er, hafi nokkrum minnstu skyldum að gegna við t.d. íbúa hinna dreifðu byggða. Það er greinilega úreltur hugsunarháttur og það er upp á hann skrifað af ríkisstjórn Íslands. Það er alveg greinilega það sem hér er á ferðinni. Hæstv. fjmrh. og ríkisstjórnin geta ekki notað það sem afsökun að þetta sé bara mál stjórnar fyrirtækisins. Í venjulegum fyrirtækjum móta eigendurnir meginlínur um fjárfestingarstefnu fyrirtækjanna og að sjálfsögðu getur hæstv. fjmrh. og ríkisstjórnin, ef hún vill svo vel við hafa, gefið fyrirtækinu almenna leiðsögn um það hvar áherslurnar eigi að liggja en þær liggja greinilega ekki lengur á Íslandi og eru ekki fólgnar í skyldum við viðskiptavinina hér í gegnum árin (Forseti hringir.) heldur einhvers staðar í útlöndum. Og hvar verður borið niður næst, hæstv. fjmrh.? Eru kannski einhverjar hugmyndir (Forseti hringir.) um það að fara til Afríku eða Kína?