Málefni Þjóðminjasafns

Mánudaginn 02. febrúar 2004, kl. 15:30:24 (3693)

2004-02-02 15:30:24# 130. lþ. 54.1 fundur 276#B málefni Þjóðminjasafns# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 130. lþ.

[15:30]

Menntamálaráðherra (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Það er ekki rétt. Það eru nægir fjármunir til til að geta opnað safnið með reisn. En ég lít svo á að með þessari munnlegu fyrirspurn hv. þm. Marðar Árnasonar, þ.e. svörum mínum við henni, muni hann koma til með að draga til baka skriflega fyrirspurn sína um sama efni sem nú liggur fyrir í Alþingi.