Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Frú forseti. Það er ánægjulegt að hv. þm. Gunnar I. Birgisson kemur hér upp og gleðst yfir því að hæstv. ríkisstjórn skuli nú hafa lagt fram tvö skattalækkunarfrumvörp. Hv. þm. rifjar það upp að þetta hafi verið samþykkt á landsfundi Sjálfstfl. og nú sé verið að efna þau loforð.
Frú forseti. Ég man ekki betur en að runa skattalækkunarhugmynda hafi verið samþykkt á landsfundi Sjálfstfl. Og hvað höfum við séð síðan? Hv. þm. talar um að hátekjuskatturinn hafi verið lækkaður. Hvað var gert hér fyrir jól varðandi hátekjuskattinn? Hann var framlengdur. Með atkvæði hv. þingmanns var verið að framlengja hátekjuskattinn. Út af fyrir sig sýti ég það ekki, síður en svo. En hv. þm. ætti að fara sér hægt í því að berja sér mjög á brjóst yfir því tiltekna máli.
Það er alveg rétt að hér er verið að taka skatt og hreinsa þau lög sem tengjast erfðafjárskatti. En ansi er það nú lítið sem hér er verið að lækka skatta um miðað við alla milljarðana sem hv. þm. Sjálfstfl. hafa talað um.
Og má ég, frú forseti, nota þetta tækifæri til þess að hressa aðeins upp á minni hv. þm. Gunnars Birgissonar og rifja það upp að hér fyrir jólin samþykkti ríkisstjórnin tvær skattahækkanir? Hún samþykkti hækkun á þungaskatti og hún samþykkti hækkun á sérstöku bensíngjaldi. Þær skattahækkanir gerðu auðvitað miklu meira en að ná yfir það lítilræði sem hér er verið að gera.
Í annan stað, frú forseti, er ég líka ósammála því sem hv. þm. sagði um að hér á landi væri hægt að stofna minningarsjóði, Trust Funds eins og kallað er, og skjóta þannig undan fjármunum. Ég held að það sé ekki nein sérstök þörf á að taka burt undanþáguna sem er í núgildandi lögum vegna þessa. Ég er þeirrar skoðunar að sú undanþága eigi að vera til staðar til þess að fólk geti arfleitt Krabbameinsfélagið og önnur líknarfélög. Það er allt annað en þeir sjóðir sem hv. þm. talar um.