Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég held að það hafi verið afskaplega mikilvægt að fá þetta fram, að það kæmi mjög skýrt fram að hér á eftir að fara fram mikið samráðsferli. Markmiðið er þetta, að vernda flórgoðann, en menn eru í sjálfu sér ekki að horfa á friðlýsingu sem slíka sem, eins og hæstv. ráðherra nefndi, hefur á sér mjög sérstaka ímynd gagnvart þeim sem nýta einstök landsvæði þar sem slíkt er uppi.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta. Þetta kemur mjög skýrt fram. Hér á eftir að vinna mikla vinnu til þess að ná einmitt þessu markmiði. Ég vil að auki þakka fyrir þessa ágætu náttúruverndaráætlun. Ég held að hún sé um margt mjög vel unnin og auðvitað gerum við okkur öll grein fyrir því að fram undan er mikil viðbótarvinna.