Birkir J. Jónsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég fagna þeirri umræðu sem hér fer fram enda er málefnið þarft, þ.e. uppbygging fjarskipta á landsbyggðinni, GSM-kerfis og almennra fjarskipta. Mönnum er tíðrætt um það í þessum sal að þögn framsóknarmanna sé æpandi í þessu máli. Ég held að við höfum verið viðstaddir allar umræður um Landssímann og almennt um Símann --- nú er þetta sjaldnast kallað Landssími Íslands lengur heldur Síminn en þeir voru að skipta um nafn um daginn --- frá síðustu kosningum. Ég held að við höfum mætt í allar umræður um málefni Landssímans enda eigum við fulltrúa í samgn. Ég sit í samgn. ásamt hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni og við erum ekki feimnir við að tjá okkur um málefni Landssímans.
Vissulega er það rétt sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sagði áðan að til eru flokksþingsályktanir um þá stefnu Framsfl. að byggja upp öflug fjarskipti á landsbyggðinni. Ég hef trú á því að allir stjórnmálaflokkar hafi það á stefnuskrá sinni. Það hlýtur að vera á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar að bæta þau fjarskipti.
Vitanlega tekur það tíma. Ég veit til þess, eftir þá fundi sem ég hef setið í hv. samgn., að samgrn. mun leggja fram svör um hvernig þeirri uppbyggingu verði háttað. Ég held við verðum að gefa okkur tíma til að bíða þess að þau svör komi. Það eru ekki nema átta mánuðir síðan kosningar fóru fram. Ég er nýliði á þingi en ég vil gefa samgrn. og Símanum tækifæri á að sýna áætlanir sínar áður en ég úttala mig eitthvað frekar um þær.