Pétur H. Blöndal:
Hæstv. forseti. Í samræmi við 2. mgr. 18. gr. þingskapa ber formanni nefndar í samráði við forseta að ákvarða störf nefndarinnar í ákveðnum málum. Nú hef ég heyrt að menn óski eftir mjög hraðri meðferð á þessu máli og ég spyr hæstv. forseta hvort það tengist eitthvað því að haldinn verður stofnfjáreigendafundur í SPRON 10. febrúar, þ.e. eftir sex daga. Ég vil fá svar frá forseta, ekki frá öðrum, um það hvort þetta tengist því að það beri að hraða meðferð málsins þvílíkt í hv. efh.- og viðskn. að ekki sé hægt að senda málið til umsagnar eins og venja er þegar sett eru góð og gegn lög.