Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að fara yfir þær --- ég vil ekki kalla það árásir --- þau orð sem hv. þm. lét falla um mig.
Það sem ég var að tala um í sambandi við 74. gr. er að lögð er til sú breyting í frv. sem skerðir hlut stofnfjáreigenda í SPRON sem hluthafa í sparisjóðnum frá því sem tillögur KB-banka og SPRON gera ráð fyrir. Það er því kominn ákveðinn verðmiði á þessa eign nú. Stofnfjáreigendur máttu gera ráð fyrir að löggjafinn tæki þennan rétt ekki af þeim. Stofnfjárhlutir eru eign í skilningi stjórnarskrár, eins og hv. þm. þekkir, og því leikur vafi á því hvort þessi grein samrýmist stjórnarskrárvörðum eignarrétti stofnfjáreigenda.
Þetta er það sem ég er að tala um í sambandi við 74. gr. Ég sé að hv. þm. hristir höfuðið en þetta er nú það sem ég las í hans drögum að frv.