Forseti (Jónína Bjartmarz):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá Margréti Frímannsdóttur, formanni þingflokks Samf., dags. 4. febrúar sl.:
,,Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið eftirfarandi breytingar á skipan þingmanna flokksins í fastanefndir og alþjóðanefndir Alþingis, sbr. 16. gr. þingskapa:
Bryndís Hlöðversdóttir tekur sæti Katrínar Júlíusdóttur í allsherjarnefnd og sæti aðalmanns í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA í stað Össurar Skarphéðinssonar.
Katrín Júlíusdóttir tekur sæti Margrétar Frímannsdóttur í félagsmálanefnd.
Össur Skarphéðinsson verður aðalmaður í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins í stað Margrétar Frímannsdóttur sem verður varamaður þar.``