Styrkir til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum

Mánudaginn 09. febrúar 2004, kl. 17:24:15 (3976)

2004-02-09 17:24:15# 130. lþ. 60.6 fundur 85. mál: #A styrkir til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum# þál., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 130. lþ.

[17:24]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skil það vel að hæstv. dómsmrh. sjái þarna eitthvað sem má flokka og skilgreina sem tæknilegan agnúa á málinu. Andi tillögunnar er hins vegar ljós og það er ekkert óeðlilegt þó að ég spyrji hæstv. dómsmrh., sem er æðsti yfirmaður ættleiðingamála, hvaða skoðun hann hafi á málinu að öðru leyti.