Aðgerðir gegn fátækt

Þriðjudaginn 10. febrúar 2004, kl. 14:35:11 (4002)

2004-02-10 14:35:11# 130. lþ. 61.8 fundur 21. mál: #A aðgerðir gegn fátækt# þál., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 130. lþ.

[14:35]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að ítreka það að úrelding sláturhúsa kom ekki til af góðu. Það voru of mörg sláturhús í landinu. Þau voru öll eða flest rekin með tapi. Með því að sameina þau og stækka hafa þau verið að hagræða hjá sér. En ég ítreka það sem ég sagði áðan, mér finnst að það megi ekki ganga of langt í þessum málum, en þó verður að reyna að fara einhverja meðalleið í þessum sláturhúsamálum. Úreldingin kom samt ekki til af góðu.