Aðgerðir gegn fátækt

Þriðjudaginn 10. febrúar 2004, kl. 16:14:58 (4031)

2004-02-10 16:14:58# 130. lþ. 61.8 fundur 21. mál: #A aðgerðir gegn fátækt# þál., AtlG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 130. lþ.

[16:14]

Atli Gíslason (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. kom ekki með svar við því hvort Framsfl. vildi beita sér fyrir því að fresta þeim skattalækkunum á hátekjuskatti og eignarskatti sem nú eru fyrirhugaðar.

Síðan bið ég hv. þm. um að lesa ræðu mína sem ég flutti hér fyrr í dag, því ég setti ekki samasemmerki á milli fátæktar og fíkniefnaneyslu, ég leitaði í ákveðnar líkur og hugleiddi þær.