Umferðaröryggi á þjóðvegum

Þriðjudaginn 17. febrúar 2004, kl. 15:28:09 (4308)

2004-02-17 15:28:09# 130. lþ. 65.7 fundur 205. mál: #A umferðaröryggi á þjóðvegum# þál., Flm. ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 130. lþ.

[15:28]

Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara minna hv. þingmann á að upplýsingar berast oft ekki til almennings fyrr en ráðherrar eru spurðir út úr í þinginu. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að veita aðhald svo að upplýsingarnar berist. Og það held ég að eigi við í þessu máli eins og ýmsum öðrum.