Veiðigjald og sjómannaafsláttur

Miðvikudaginn 18. febrúar 2004, kl. 13:43:40 (4332)

2004-02-18 13:43:40# 130. lþ. 66.91 fundur 336#B veiðigjald og sjómannaafsláttur# (aths. um störf þingsins), LB
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 130. lþ.

[13:43]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka þátt í þessari umræðu. En vegna ummæla hæstv. sjútvrh. er mér bæði ljúft og skylt að koma hér upp og lýsa því yfir að sú sátt sem hann telur sig vera handhafa að og hafa keyrt í gegnum þingið er á engan hátt í samræmi við það sem menn leituðu eftir í auðlindanefndinni. Sá sem hér stendur átti sæti í auðlindanefndinni. Ég vildi bara að þetta lægi fyrir í umræðunni og að menn séu ekki að rugla þessu saman því að það er mjög mikilvægt.