Málefni Palestínumanna

Fimmtudaginn 19. febrúar 2004, kl. 10:44:10 (4382)

2004-02-19 10:44:10# 130. lþ. 68.94 fundur 341#B málefni Palestínumanna# (umræður utan dagskrár), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 130. lþ.

[10:44]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil biðjast afsökunar á því að það hafði fallið mér úr minni að þessi tillaga lá fyrir, 11. dagskrármál, Aðskilnaðarmúrinn í Palestínu. Af þeim sökum hefði ekki átt að koma til þessarar utandagskrárumræðu. Ég mun þess vegna taka 11. dagskrármál á dagskrá þegar að lokinni umræðu utan dagskrár.